Könnun
Fórstu á Whitesnake?
0 atkvæði

Nei
3 atkvæði

Hvað er það?
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 3
03.06.2008 20:10:07 / Addi

Sumarið er komið

jæja þá hefur ekkert verið skrifað hérna í ár og aldir.

Það hefur verið ákveðið að maður sé að fara að byrja í bootcamp 16 júní, ég segi að það hafi verið ákveðið fyrir mig því að mér líst ekkert á þetta helvíti, en maður lætur undan þrýstingi og hefur bara gott af þessari geðveiki. Þannig er málum háttað að við erum byrjaðir að undirbúa okkur undir leiðsögn frá Gunna og erum farnir að mæta niðrá kastsvæðið kl 6:15 þrisvar x í viku og ég er ekki frá því að maður hafi verið góður við sjálfan sig í gegnum tíðina, en nú er ekki langt þar til að alvöru dæmið byrjar og því má ekkert klikka næstu tvær vikur ef maður ætlar ekki að kasta upp á fyrstu æfingu. Við munum væntanlega starta smá veðmáli fyrir herlegheitin og það er aldrei að vita nema að við segjum eitthvað frá gangi mála hérna á síðunni.

Svo erum við Maggi búnir að fjárfesta í restinni af köfunargræjunum sem okkur vantaði og búnir að fara júmfrúarferðina sem var við Garðsbryggju í Garði. Á þessum tíma árs hafa sést  litlir höfrungar eða skyldmenni þeirra af einverju tagi á svæðinu og þóttumst við heyra hátíðnihljóð í kafi en sáum samt ekkert, en hver veit nema að maður mæti svona kvikindi á svamli í sjónum í sumar :)

Eins og flestir vita þá heldur sunnudagsboltinn áfram í sumar.
Það er búið að skýra Lilla Baldursson og heitir hann Birkir Már.
Stefnt er á að fara í Hallgeirsey fyrstu helgina í júlí.
Það verður því miður ekkert Addfest í ár, allavega ekki á sama tíma og venjulega.


 





» 5 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 10:54:26 / Andri

Þá er barnið fætt

Vill bara óska Baldri og Lindu innilega til hamingju með litla snáðann sinn fyrir hönd okkar L-towninga. Vonandi verður þetta skemmtileg ferð fyrir ykkur og meigið þið njóta hjálpar frá Óla í pössun í framtíðinni.:lol:
Ég og kolla sjáum svo til hvernig ykkur gengur og þá förum við að hugsa út í þetta!!!!!!8)


DJÓK DJÓK DJÓK DJÓK




PLAT

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 17:31:02 / Andri

Barnið

Þá fer að koma að því að fyrsta barnið okkar ltown-inga kemur út úr Lindu bráðlega. Reyndar eiga þau Baldur og hún það saman en við eigum það öll saman, alla vegana bara smá. Hver kom þeim saman? minnir að það var Addi og ástin. Við höfum alið Baldur rétt upp svo að hann sé hinn fullkomnni kærasti fyrir Lindu. Það var ekki auðvelt starf að gera þaðJ En Linda er nú búin að ganga með barnið andskoti lengi og fer því að styttast í það að hún muni eiga. Þá fer maður að spá hvaða nafn þau munu gefa barninu? Verður það eitthvað svona nútímalegt eins og Mist ,Nótt eða hippalegt eins og Sól Máni eða eitthvað í þá áttina. Hvað varð um þessi nöfn sem við lásum í Íslendingasögunum eins og Þorgils, Þórmar og Þrymur. Linda og Baldur ég er ekki skyggn ef ég skrifa nafnið hérna niður þetta eru bara hugdettur. Nóg með þetta, við ættum að fara veðja smá á hvenær barnið mun koma í heiminn.

Ég segi 15.apríl +- einn dagur. Gerið þið það samaJ

Sá sem hefur rétt fyrir sér, hefur unnið sér inn þann rétt að Baldur geti hringt í hann/hana til að taka til heima hjá sér að passa barnið þegar þau þurfa að prufa eitthvað nýtt í rúminu.
Hérna er smá leiðbeiningar hvernig þetta gengur fyrir sig
http://www.shinesa.org.au/images/Stages-of-birth.gif

Kv. Andri Spámaður


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 14:08:44 / Andri

Smá pæling

Hvað er málið með vörur sem eru framleiddar hér á Íslandi eru oftast dýrari en þær sem eru innfluttar.
Harðfiskur er fáranlega dýr, einn pakki kostar yfir 1000 kr. eða meira. Fiskurinn er veiddur hérna rétt fyrir utan landið og farið með hann beint í fiskvinnslu hér. Hvað er það sem kostar svo mikið við þessa framleiðslu!!!!!!!:^). Ég hreinlega skil þetta ekki, ég væri alltaf að jappla á fisknum. Alveg rosalega hollt fyrir mann.

Bara smá pæling, hafði reyndar aðra pælingu en ég man hana ekki núna en kannski kemur hún yfir mig seinna.

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 17:25:37 / Maggi

Gamalt og gott






» 7 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 20:38:19 / immug

Sveitaferð!!!

Jæja L-town meðlimir og aðrir góðkuningjar lögreglunnar!

Nú er komið að sveitaferð L-town 2007 í Drangshlíð undir Eyjafjöllum þann 7-9 mars 2008. Ég er búinn að vera að kanna þetta hjá mömmu og pabba og þetta er eiginlega eina helgin sem gengur upp. Endilega skráið ykkur í kommentin sem ætlið að fara, ég bóka að Óli mætir og heldur uppi stemmaranum eins og sést á þessari mynd úr síðustu ferð!

http://images109.fotki.com/v795/free/d0888/9/944695/4477961/IMG_1590-vi.jpg?1168281934


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 10:07:56 / Andri

Hundur

Jæja ákvað að henda inn smá færslu. Það merkilega geriðst um daginn að ég og Kolla keyptum okkur hund. Þetta er ekki smá hundur eða Toy Dog heldur er þetta bara lítill hundur sem var upprunalega að veiða rottur. Þannig ég myndi passa á mér punginn ef þið eru eitthvað að dissa elskuna mína. En hún heitir Móna Lísa

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 17:03:08 / Addi

Fantasy premier league, EM og Afríkukeppnin

Skora...........Ísland...........Skora

Búmm búmm

Skora..........Ísland...........Skora !!!!

 

Vá þetta er mest niðurdrepandi og lélegasta "stuðningslag" sem ég hef á ævinni heyrt, þetta er meira að segja lélegra en "you never walk alone",nei segji svona :)

En að öllu gamni slepptu þá vinnum við aldrei neitt eða nokkuð á meðan að þetta stef er sungið á áhorfendapöllunum, það er sko alveg á hreinu.

Það væri skárra að syngja Bíum bíum bambaló, Fljúga hvítu fiðrildin eða Hafið bláa hafið í staðin fyrir þetta blessaða "lag".

Ættum bara að halda okkur við hreint og beint ÍSLAND........o.s.fr. eða bara tralla lagið úr Gerum okkar gerum okkar gerum okkar besta...............

Ætla nú ekki að hafa fleirri skoðanir á stuðningslögum, en þetta lag er allavega niðurdrepandi og lélegt.

 

Talandi um Fantasy, er búinn að gera gríðalegar breytingar á mínu liði og veit ekki alveg hvort að ég var að gera rétt í þessum aðgerðum mínum. En ég keypti allavega ekki M Laursen og mun ekki gera það.

Og já Manucho að gera góða hluti á Afríkumótinu, skoraði með hörkuskalla í leik Angóla vs. S-Afríku.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 23:06:47 / Addi

smá færsla

Nú er hið ljúfa jólafrí búið og "alvaran" tekin við :)

Hvað er málið strákar? Maður skellir sér rétt aðeins út á eitt stk leik í ensku deildinni (United vs. Newcastle (6-0)) og þá verður bara allt vitlaust í sunnudagsboltanum, menn með rifna lærvöðva og ég veit ekki hvað. En leikurinn var algjör snilld og við sátum í 8. röð frá vellinum þeim megin sem öll mörkin komu og ekki hægt að kvarta yfir því :)

Og hvaða rugl er þetta....................................fara Lescott og Laursen ekki að fara að hætta að skora, ég er búinn að fá mig full saddan af þessari vitleysu, greinilegt að maður þarf að skoða sín mál í fantasy premier league ef maður ætlar ekki að láta Guðmund Jónsons stinga sig illilega af. Spurning um að byrja á því að selja þennan afríkumann sinn, hann skilar ekki inn mörgum stigum á meðan afríkukeppnin er í gangi. En það er alveg augljóst að Manucho verður nýjasta stjarnan í fantasy um leið og hann fær atvinnuleyfi.

 

 

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 23:10:47 / immug

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökkum fyrir það liðna!

 

P.s. hvernig líst fólki á að skella sér á NASA á gamlárskvöld (miðasala á www.midi.is)?


» 14 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 14:29:57 / immug

Fantasy Premier League

Jæja,

Nú er komið að því að þið sannið hver er besti knattspyrnustjóri L-town!

Það er búið að stofna deild á síðunni http://fantasy.premierleague.com

Þetta er svona managerleikur og til þess að vera með þurfið þið að skrá ykkur á síðuna og setja saman ykkar eigið lið (á forsíðunni er hægt að velja "Not registered? Sign up>" í hægra horninu til að skrá sig). Þegar þið eruð búnir að setja upp liðið ykkar ýtið þið á "Leagues" í valmyndinni vinstra megin á síðunni. Á þeirri síðu stendur "Join league" og þar fyrir ofan þurfið þið að setja inn númer deildarinnar sem þið ætlið að taka þátt í. Númerið fyrir L-town deildina er 823745-136839.

Þeir sem hafa áhuga þurfið að skrá ykkur fyrir næsta föstudag því að þá munu ég endurræsa stigin í deildinni þannig að keppnin hefjist af alvöru. Til að gera þetta kannski meira spennandi væri gaman ef að við myndum taka smá veðmál á þetta og sá sem myndi vera efstur þegar deildin klárast í vor fær 1.000 kr. frá hinum. Þeir sem vilja taka þátt í þessu veðmáli skrái sig í kommentin.

Endilega að drífa í þessu fyrir næstu helgi enda engin smá fótbolta helgi!


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 12:55:07 / ommi

Jól eða ?

Andri talar um hér fyrir neðan að það sé að líða að jólum sem er vissulega rétt,, því bjó ég þetta til svona í anda þeirra.

http://www.elfyourself.com/?id=1191521465    p,s tekur smá tíma að virka :haha:Enjoy

Og hér kemur svo nýtt með Mér, JP Adda og Óla http://www.elfyourself.com/?id=1205507724

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 20:09:38 / Andri

Það eru jól

Það sem er á allra vörum þessa dagana eru þessar blessaðar feministar og þeirra mál. Af hverju skapaði guð karl og konu?? svo að við gætum lifað og fjögað okkur. Er ekki misrétti að konur fái bara að ganga með börn!!! kannski vill einhver karlremba gera það, þetta er jafn gott dæmi og þessar KELLINGAR eru að tala um. Þær meiga alveg berjast fyrir jafnrétti kvenna í hinum ýmsu málum en slappið aðeins af. Af hverju vilja þær verða jafnar körlum, af hverju vilja þær ekki verða betri en við? hafa þær engar trú á sjálfum sér. Það er greinilegt að þær halda að við séum æðra kynið og þær geti ekki hugsað sér að verða betri, þess vegna ætla þær að draga okkur niður á þeirra plan. Svo sitja einhverjar af þessum konum örugglega á þingi og við borgum undir þær og þær gera ekkert annað en að berjast fyrir einhverju sem er algjörlega út í hött. Börn á fæðingadeild eiga að vera klædd í hvítt ekki bleikt eða blátt. Hvað í ósköpunum halda þær að þetta geri í sinni baráttu annað en að spítalar þurfa þá að henda hinum fötunum og kaupa hvít. Væri ekki nær að nota þessa pening í eitthvað þarfara eins og t.d. kaupa ný tæki eða eitthvað. Hvað myndi gerast ef við karlarnir myndum stofna okkar félag og berjast fyrir að halda kvennþjóðinni niðri. Þær ættu ekki að fá góðlaun í sömu vinnu o.frv. Hvernig yrði þessu tekið í þjóðfélaginu??

Þetta vilja þær örugglega

 

 K.Æ.K

Karlar æðra kynið 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 23:11:16 / immug

Mjög mikilvægt - varðar bjórdrykkju

Sá þetta á B2, fannst alveg nauðsynlegt að koma þessum gríðarlega mikilvægu upplýsingum á framfæri. Besta læknisfræðilega úrræðið sem til er við þessu er að hætta að drekka bjór og drekka þess í stað viskí og aðra sterka drykki, konurnar hafa stolið bjórnum af okkur!


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15